sportblogg
Annar,fáeinir,engin,neinn,,,,
Afþreying
26.08.2007 22:17:09 / arihj

Ofsjónir

Sælinú

Það er gaman að segja frá því að ég orðið fyrir svæsnum ofsjónum nýlega og langaði að deila þeim með almúganum

8| Horfði í spegil nýlega og sá hver er fallegastur í heimi

8| Horfði á Sýn og fannst eins og enski boltinn væri í gangi þar, getur það verið, hmmmm verð að spyrja Sollu

8| Elsta barnið fermist í vetur og mið barnið byrjað í skóla, kíkti aftur í spegilinn, hjúkket ennþá fallegastur í heimi þrátt fyrir aldurinn.

8| Akureyringar komust enn á ný í fréttirnar um daginn. Þegar hundurinn Heilagur Lúkas sást fastur í 38 tommu hjólfari. Þustu þá allir sem vettlingi gátu valdið að bjarga honum upp vesalingnum. Eigandinn, sem var í útlöndum af því að hún hafði efni á því vegna þess að hún hefur ekki þurft að borga fyrir ormahreinsun svo lengi, gat engan vegið komið í veg fyrir það. Þannig að nú þarf hún aftur að hlusta á hann ýlfra á næturnar. Að sögn björgunarmanna tókst að veiða hann upp úr hjólfarinu með svokallaðri kú klux klan hettu sem einn björgunarmanna hafði á sér fyrir algjöra tilviljun eftir að hafa ofsótt drengræfil á höfuðborgarsvæðinu bara af því hann hafði týnt íþróttatöskunni sinni ..... Skammast engin sín lengur :S 

8| Talið var að 35.000 manns hefðu verið á fiskideginum á Dalvík..... Stenst ekki það er bara ein gata sem liggur til Dalvíkur og allir þessir bílar.....

8| Tilkynning: Fór á fiskidaginn og lagði af stað á fimmtudegi, fékk stæði í 6. útskoti í Ólafsfjarðargöngunum sem er persónulegt met. Sævar Margrétarson fyrrum háseti á Leka frá Grindavík

8| Skrapp á Gay pride og sagt var frammi fyrir alþjóð að 80.000 manns hefðu verið þar. Glætan spætan,,,, ef svo sé þá er samkynhneigð bara sýniþörf. Je man ég var í pilsi og háhæluðum fyrir framan 80,000 manns. Er viðkomandi búin að spyrja hvort það sé normalt...

8| Ef það séu 35.000 á fiskideginum og 80.000 manns á Gay pride.. Hvar voru þá hinir?

Rétt svar er: í Ólafsfirði, fastir í göngunum af því að einhver bilaður skipstjóri lagði Hummernum í 6. útskoti

Kveð að sinni til þess eins að sinna konunni því ekki þolir hún sinnuleysi.

Kveðja SinnAri


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:20:20 / arihj

Lazarus rís upp og gakk

Já það er komin tími á að rita eitthvað niður enda hafa síðust dagar verið viðburðarríkir svo ekki sé nú meira sagt.

# Eignaðist nýjan tengdason nýverið og lofar hann góðu (heldur með Liverpool) en ég man aldrei hvað hann heitir

# Fékk heimild til að fá sýn þannig að jafnréttisbaráttan heldur áfram

# Er farinn að þjálfa í nanast fullu starfi og hef ég aldrei munað eins mörg nöfn (125)

# Vann Ragga í golfi. Það eina sem hefur komið í veg fyrir það hingað til er að ég hef ekki spilað golf í 2 ár þannig að þetta var bara spurning um tíma

# núna eru mánaðarmót þannig að ég og Hreggi erum bestu vinir.

# Missti af lokaþættinum í Boston Legal og er óhuggandi

# Keypti annan bíl um daginn EN samt hef ég aldrei átt bíl :evil:

# Missti afa minn 2. júní þannig að nú ég engan alnafna á lífi sem undarlega tómlegt

Kveðja Ari

 

,,Þú getur ekki verið töffari nema að heita Ari,,

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 22:51:06 / arihj

Smákökubakstur dauðans

Já Já

Í dag fyrsti mánudagur í aðventu og þá kemur smákökuklúbburinn okkar strákanna saman og bakar smákökur sem við BORÐUM, ekki þetta þingeyingasull með einhverri kremdrullu á milli sem mamma bakaði í gamla daga. Agnarsmár mætti fyrstur og horfði á von trí hil á skjánum og það eina sem hann lagði til var að fletja út smákökurnar með gaffli þar sem tryggt var að hann þurfti ekki að snerta það með puttunum. Þetta er framför frá því í fyrra þar sem hann var látinn áfengisdauða vel fyrir kvöldmat. Lókurinn ,nýkominn frá Bandaríkjahreppi,mætti næstur eftir að búið var að lokka hann mmeð því að það yrði matur í boði. Það sem hann lagði til var ,,,, var ,,,,, ekki neitt nema kannski að borða pizzuna frá krökkunum, tók tölvuna af Tótu og lá á netinu allt kvöldið að ,,leita að uppskriftum,, Þannig að bóndinn á bænum og Tóta vinnukona hnoðuðu í viðstöðulausa fjórfalda uppskrift af súkkulaðikökum sem tókust svona bærilega, nema að þegar  kökurnar komu á borðið þá sagði Lókurinn að ,, bakk í Ameríku þá voru súkkulaðikökurnar svona stórar. Varla nema von að hann þyngdist um 10 kíló. Ekki er allt búið enn því eitt saklaust lamb út í sveit gaf líf sitt eftir smákökubaksturinn til að seðja hið mikla hungur Lóksins því þegar var komið að því að slútta kvöldinu þá vildi Lókurinn fá lambakjöt og það strax. Bóndinn misskildi þetta eitthvað og sló skjaldborg utan um Tótu vinnukonu, en það var eina lambakjötið sem var í augsýn hans 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 20:50:01 / arihj

Af þukli og öðrum fréttum

Sælinú :S

Nú hefur fólk verið að kíkja í heimsókn undanfarna daga og grátbiðja um einhver skrif inn á þetta blessaða blogg. Ég svaraði því þannig að fyrr myndi Gunni ná sér í konu en að ég fari að eyða tíma í svona vitleysu, Gunni hvernig gastu gert mér þetta, ertu eitthvað desperete maður.:S

Sumarið hefur farið mikla vinnu og keppni, já gott fólk kallinn var að túra í sumar en ekki í fótbolta, handbolta eða golfi eins og vitfirringur heldur var ég að hefja mitt fyrsta sumar sem atvinnumaður í hrútaþukli. Mótaröðin í hrútaþukli inniheldur fjögur stórmót sem telja til stiga. Vatnsleysustrandarmótið, opna Hrútafjarðarmótið, Öræfaþuklarinn 2006 og Vestfjarðarkrumlan.

Hvert mót fer þannig fram að fimm sérhæfð ráðanaut taka fimm mismunandi lambhrúta og meta þá samkvæmt kúnstarinnar reglum og raða þeim upp í röð eftir gæðum. Síðan eiga keppendur að þukla (grípa í eins og við atvinnumennirnir köllum það) og reyna að komast sem næst röð ráðunautana.

Fyrsta mótið var haldið á Vogum á  Vatnsleysuströnd. Þar hafnaði ég í 6. sæti af 13 keppendum sem ég var nokkuð sáttur með. Sigurvegarinn var Njáll frá Heygarðshorni gömul goðsögn í bransanum sem var að hefja sitt 34. keppnistímabil og fyrirmynd mín í fræðunum. Það sem ég klikkaði á í þessari keppni að ég gaf flekkóttum lambhrút vitlaust litanúmer sem er náttúrulega algjör háðung í keppni sem þessari.

Næst var haldið til Hrútfjarðar og tekið þátt í opna Hrútafjarðarmótinu. Þessu móti hefur verið að vaxa ásmeginn síðastliðinn ár og erlendum keppendum fjölgar ár frá ári. Núna í ár komu keppendur frá Nýja-Sjálandi, Spáni og einn frá Alsír. Þessi Alsírski var náttúrulega spaug efast ég um að hann fái að koma aftur hann til dæmis gaf einum lambhrút 18,5 fyrir læri sem voru rakin 16,5 og hlógu menn mikið þegar hann reyndi að mótmæla þessu. Ég hafnaði í 12. sæti (3 af Íslnedingunum) á mótinu en sá sem vann var náttúrulega frá Skotlandi. Ótrúlegt hvað þessir andskotar eru næmir og snöggir, en sumir Spánverjarnir eru svo lengi að grípa í að það mætti halda að þeir fái eitthvað út úr þessu. Reyndar þurfa allir keppendur hér heima að skila inn sakarvottorði svo að ekki sleppi inn einstaklingar sem hafa gerst sekir um,, eins og við atvinnumennirnir köllum það,,   dýraníðslu. En það mætti halda að Spánverjarnir hafi ekki þurt að standast þær kröfur.

Í Öræfaþuklaranum var hressilega gripið í og mikil keppni enda varð mjótt á munum þar. Sigurvegari var Guðlaug frá Stökustað í Öræfasveit. Hún er mikil valkyrja sem gaman er að fylgjast með, stór og mikil, herðabreið sem karlmaður, allrassstór er hún og þétt á öðrum stöðum, andlit allt veðurbarið og haka og nef hrikaleg, enda tekur kerling gríðarlega í nefið eða svo mikið að það lekur úr nefinu á henni og í ullina á lambhrútunum á meðan hún grípur í. Hafa nokkrir í gegnum tíðina hreinlega gefið lambhrútnum vitlaust litanúmer eftir að kerlingin hefur gripið í. Annar varð síðan Njáll frá Heygarðshorni og síðan ég. En þessi kepnni átti eftir að verða söguleg í meira lagi því lyfjaeftirlitið tók hús á okkur og tók nokkra í lyfjapróf og það er frá því að segja að Njáll frá Heygarðshorni féll á prófinu. Hann hafði tekið inn efnið Strípólín sem eykur næmnina í fingrunum ekki nóg með það heldur viðurkenndi hann að hafa tekið það síðastliðinn 6 tímabil. Þar hrundi fyrirmynd mín, sextánfaldur íslandsmeistari,tvisvar sigurvegari í opna Hrútafjarðarmótinu og 27 sinnum á forsíðu Gimbilsins, tímarit um lambhrútadóma. Engin greip í læri eins og hann. En ljósið í myrkrinu var að ég var settur í annað sæti og kominn í bullandi séns um það komast í verðlaunasæti í heildarstigakeppninni.

Það var mikil spenna fyrir Vestfjarðarþuklarann enda mjótt á munum í heildarstigakeppninni. Ég fór alveg með sénsinn hafnaði í 10 sæti  vegna þess að ég gaf aðeins 7,5 fyrir bringuútlögur í staðinn fyrir 9 og það er ótrúleg fljótfærni en bringuútlögurinn hefur verið mér erfiðu í allt sumar. Sigurvegari varð Guðlaug frá Stökustað og hampaði í hinum fallega verðlaunagrip ,,Gullreyfinu,, Gulla var í feykna formi í allt sumar þrátt fyrir að lenda neðarlega á Vatnsleysustrandarmótinu. Þar gleymdi hún að skoða upp í einn lambhrút.

Og þar hafið þið það 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 22:17:55 / arihj

Þvílíkur dagur

Fótbolti er sanngjörn íþrótt það sannast alltaf í maímánuði og það tvö ár í röð;) Ríkjandi Evrópumeistarar Liverpool unnu í dag frækinn sigur á vestur-skinkunni og sannaðist að sanngirninn sigrar að lokum því lið sem skorar eitt heppnismark og tvö mörk úr tveimur fyrirgjöfum á ekki skilið að vinna, það að skora jöfnunarmark af 39 metra færi mínútu fyrir leikslok með krampa í báðum skilur góða leikmenn frá frábærum leikmönnum8).

Annars er lítið að gerast nema að Ingþór og Ása ætla ekki að hætta að vera óheppinn og sendi ég hlýja strauma til þeirra.

Ég hef einnig tekið eftir því hvað Gunni hefur verið iðinn við að þrífa sig undanfarið, á morgnana er hann farinn að lykta eins og lótusblóm og er þetta mér hulinn ráðgáta :haha:.

Gunni átti reyndar æðislegan punkt á dögunum. Við vorum að tala um þessa tískubylgju sem samkynhneigð er orðin, og hafði Gunni það að orði að ef allar íslenskar saurþjöppur og ,, muff divers,, myndu koma út úr skápnum þá myndi þetta vandamál verða úr sögunni og það tæki bara eina kynslóð að klára dæmið:haha:

Þá getur Gunni á sextugsaldri reynt við hvaða konu sem er undir þrítugu og ekki fengið það í andlitið að hún væri ,,muff diver,,

Annars verð ég að passa mig á því sem ég hef eftir Gunna á þessu bloggi því síðasta blogg fór eitthvað fyrir brjóstið á sumum (og ekkert smá brjóst maður) þannig ég hef þurft að ganga meðfram veggjum upp á síðkastið og forðast brekkuhverfið. 

En ástæðan fyrir þessu bloggi er sú að fyrir tveimur dögum missti ég næstum röddina og hef ég hljómað eins versti fermingardrengur í bullandi mútum, en það er gott að eiga góða að því þetta ástand mitt hefur sýnt svo um munar hverjir eru vinir manns:!: hinir hafa gert lítið annað en að hlæja upp í opið geðið á mér og kallað mig ýmsum nöfnum sem ekki verða viðhöfð hér:^).   

Ykkar Skrámur


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 19:56:55 / arihj

Einn undir hælnum

Það er naumast að maður er kominn undir hælinn. Konan brá sér af bæ til að svala spilafíkn sinni:$ og skildi kallinn eftir heima með börnin. Kallinn var ekkert smá ánægður með lífið:D börnin í rúmið og enska boltann á skjáinn,,,, en NEI því var nú ekki að fagna. Kerlingin hafði skilið vídeóið eftir á upptöku og þar sem þessi aumi , já AUMI strákur frá símanum sem tengdi allt draslið hjá okkur, tengdi það þannig að þegar það er tekið upp þá er ekki hægt að horfa á Enska, stöð2 bíó eða sýn. Þannig að ekkert gengdarlaust kynlíf framundan í kvöld og enginn enskur bolti sem þýðir að 2 af 3 grunnþörfum karlmannsins er ekki sinnt. Þetta getur haft skelfilegar afleiðingar :evil:

Í fyrsta lagi gæti ég kíkt til Gunna high jumper en þá er hætta á að ég taki út eitthvað af þessum grunnþörfum :^)

Í annan stað þá gætu samstarfsmennirnir (strákarnir) orðið fyrir ýmsum ónotum frá mér næstu vikurnar (launalækkunum, einelti, sett bein í fiskinn þeirra:haha:, Skólprör þrifinn að innan og margt fleira)

Annars er það frétta að okkar ástkæri:$ Ingþór the cave man sneri aftur til landsins í gríðarlegu formi eftir mánaðar æfingar í ,,ganni slag,, Það tók Egil til dæmis heilar 30 sekúndur að leggja hann og er það gríðarleg framför hjá Ingþórnum.

Ég og Gunnarinn tókum að okkur afleysinga fjósamennsku nýverið og þar var griðarlegt stuð. Glöggir afleysinga fjósamenn tóku eftir því að það átti eftir að gefa nokkrum beljum nafn. Gunni tók fljótlega eftir því að ein beljan hét Ása og kom það honum ansi kunnulega fyrir sjónir8| . Jú jú kom þá kunnulegur glampi í augun á Gunna. ,, Heyrðu þar sem þessi heitir Ása eins og konan hans Ingþórs, þá væri gaman ef við skírðum þessa Söru og þessa Jóhönnu af því að hún baular svo hátt???? þá spurði ég í sakleysi mínu ,, en þú átt enga konu Gunnar minn eigum við þá að skíra þessa Brundbréf...


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 21:39:36 / arihj

Sesar Þór Viðarsson

Minning:cry:

Mig langaði að rita fáein orð um hann vin minn og frænda Sesar Þór..

Þegar ég kynntist Sesari fyrst þá var hann 12 ára og ég að byrja minn þjálfaraferil, þessi drengur var einn sá áhugasamasti sem ég hef kynnst alveg sama bara ef það tengdist íþróttum. Sesar var jafnan fyrsti til að bjóða sig fram þegar það þurfti að taka til hendinni t.d. að slá völlinn o.þ.h. Hann kom alltaf á dráttarvélinni með sláttuvélina og sló völlin á Melum það þurfti bara hálft orð. Seinna frétti ég það að hann hafði alltaf gert þetta í óþökk pabba síns en það sýnir bara hve miklir vinir við vorum, ha.nn bara sveik mig aldrei...

Sú minning sem kemur fyrst í hugann er þegar við kepptum saman í 4x100m boðhlaupi ég,Frikki,Hreggi og Sesar. Frikki startaði en rétt áður en hann lét Sesar fá keflið missti hann það og duttum við úr því fyrsta og niður í fjórða. Þegar Sesar fékk keflið var hann langt á eftir næsta manni en týndi þá upp einn af öðrum og minningin er svipurinn á stráknum þegar hann nálgaðist mig, hann er ógleymanlegur...

Þegar pabbi fótbrotnaði þurfti ég að fá einhvern til að hjálpa mér hjá J.B. og var Sesar sá fyrsti sem mér datt í hug að fá og hringdi strax en þá kom bara í ljós að hann var bara of ungur til að vinna hjá okkur.

Seinna byrjaði Sesar hjá J.B. og hann var gríðarlega duglegur og það kom fljótt í ljós hversu hæfileikaríkur hann var og vildum við fyrir alla muni halda honum hjá okkur sem lengst.

Ég trúi ekki ennþá að þessi frábæri drengur sé horfinn á braut og er eftirsjáin mikill

,,Þeir sem guðirnir elska deyja ungir, well fuck the gods, this is unfair,,

HVÍL Í FRIÐI ELSKU SESAR MINN.


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 20:46:03 / arihj

Smá hugleðingar

Dagurinn í dag byrjaði eins og aðrir ,,bíða eftir Gunna,, . Þar sem öskudagurinn var í fullum gangi renndum við félagarnir í lúgu í virðulegri sjoppu hér í bæ og hófum upp raust okkar og sungum kátir voru karlar, þar sem við notuðum Borgarbrautina til að æfa lagið þá sungum við að sjálfsögðu raddað , Gunni í g-dúr og ég áttund neðar:!:

Viðbrögðin voru sjokkerandi svo ekki sé meira sagt 8| sjoppustelpan í trúðsgerfinu sagði þetta vera heyrnarnauðgun og ekkert annað og við fengjum ekki einu sinni hálfan sleikjó fyrir þetta ( þetta skal ég muna þegar ég heyri hana tjá sig um þessa karókí söngvara í IDOL-inu :whut:) ('trúðskelling ég vil láta þig vita ef þú lest þetta ég er sár og það verður bið á því að við sofum saman í bráð)

Annars er allt í gangi núna er á klósettinu að drulla og gengur það svona upp og ofan:^), er örugglega kominn með svona átta í útvíkkun þannig að þetta hlýtur að hafast:haha: jújú þarna kom það

Í J.B. fréttum er það helst að við bíðum spenntir eftir 11. mars því þá á Ingþór the cave man að berjast við einhvern tælending, ekki það að það sé eitthvað slæmt, það verður náttúrulega hneisa ef hann tapar en hinsvegar gríðarlega fyndið fyrir okkur hina :haha:... Ingþór ef þú ert þarna sendu línu.

Egill var auðvitað slasa sig í fyrradag, ekki eins og það séu fréttir en miðað við síðasta slys þegar hann fékk ,,5 tonna vegg ofan á sig,, þá lenti hann líklega með hendina í fiskflökunar vél :$ en hann kemur á morgun því veikindi eru auðvitað bönnuð hjá J.B. sem og barneignir í óvígðri sambúð.

Ég og Gunni eyddum hádeginu í leiknum ,Stun the Gunn, sem mér finnst rosa skemmtilegt, en bara svona til að sýna fram á hvað Gunni er mikill lúser þá vil ég spyrja almúgann ,, Hvað eiga myndirnar Imortal beloved og Hannibal sameiginlegt.

Raggi Palli kíkti í heimsókn um síðustu helgi með nýja bjórvatnið (Þrusugott) sem hann er að setja á markað (drykkurinn heitir DNA) en fyrsti dagurinn í ríkinu er í dag vonandi gengur vel hjá þeim.

En já svarið við síðustu gátu

Maður einn fór niður á Stíl og vildi láta búa til skilti fyrir nýju verslunina sína sem átti að opna eftir viku en hún hét Kjöt og fiskur. Þegar hann kom svo mánuði síðar var Stíll náttúrulega búin að klúðra þessu og á skiltinu mátti lesa Kjötogfiskur. Maðurinn brást reiður við og sagði ,,Sko ég vil hafa bil á kjöt og OG og OG og fiskur,, Sniðugt


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 18:46:14 / arihj

Just my luck

Jæja komin tími til að barma sér:|

Mágkonan kom í ,,óvænta,, heimsókn áðan:cry: og eins og í gamla daga , beiddist hreppsómagin gistingar ásamt lausaleikskrógum sínum,, þannig að það er skemmtilegt kvöld framundan og í framhaldi af því kemur æðisleg nótt (Spurning að það sé kominn tími til að taka bláu pilluna) :$ .

Annars er allt gott að frétta. Hlutabréfin í Landsbankanum tóku dýfu um helgina vegna óhóflegrar áfengisdrykkju starfsmanna J.B. Það gekk svo langt að háttvirtur starfsmannastjóri J.B. hringdi í mig kl 23:30 á föstudagskvöld og tjáði mér í trúnaði:lol: að nú yrði hann að kaupa refabú og frystikistu nær Akureyri svo hann gæti sinnt áhugamálum sínum betur8| ,,,,,,hvað sem það nú þýðir,

Svo í lokin er það janúargátan,, er hægt að segja og fimm sinnum í röð í sömu setningunni fullkomlega málfræðilega löglega eða eins og Ingþór the cave man myndi segja beissíkli ræt með kúl grammari...:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 10:57:57 / arihj

Gleðilegt ár

Í tilefni að nýju ári er ekki úr vegi að kíkja á kvikmynd.is og fletta upp á boltahaldarinn og þá kemur í ljós hvað ég gaf gunna í jólagjöf ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 00:45:11 / arihj

Einn pínu erfiður

Stfuaragl

Það er avleg órúteglt havð hileinn er mnaðguar. Ef þú lset etiffrnaradi pitisl þá kmtseu að því

Skamæmvt rnaskón sem var greð í hkásalnuóm í Cbmradige þá guetr hileinn liseð enaldaifn ttxea ef að frsyti srunaitfn og sá sðstaíi eru á sníum satð en ariðr í rlugi þá guetr hileinn liseð ttxea. Sgðniut ekki stat:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 23:01:44 / arihj

Cojones

Dagsbrot með Ingþóri

Já lærði nýtt orð í dag (cojones). Ingþór kommentaði inn á síðasta pistill með þessu orði þannig að ég rauk á kallinn og krafðist þýðingar. ,,, Þetta þýðir eistu Ari minn, ég er með 20lbs þung eistu,,, . Ég leit upp og svo varð vandræðaleg þögn:$. Ég get svarið það að ég beið eftir að hann girti niður um sig til að sýna mér:^)

Annars drifu allir starfsmenn sig á jólahlaðborð um kvöldið með spússur sínar. J.B urðu rausnarlegir að vanda og keyptu rauðvín á liðið og auk heldur gos. Þegar ég steig niður af yfirmanns messanum til starfsmanna þá tilkynnti ég virðulega að J.B. ætlaði að bjóða upp á gosið og rauðvínið þá var Gunni ansi snöggur til og dreif sig á barinn og ,,keypti,, bjór:whut: .Sumir kunna sig greinilega. Annars hafði fólkið á yfirmanns messanum það að orði að það væri langt síðan að J.B. gæti státað að jafn prúðu starfsfólki :) Já og myndarlegu, Agnes talaði um að það væri stutt í að starfsmenn gætu setið við sama borð og fólkið á yfirmanns messanum;) (Vantar smá upp á meikið)

Þegar Gunni var við það binda enda á kvöldið með þessu módelveseni sínu, þá Hóf okkar maður Ingþór the cave man, upp raust sína og hóf að syngja falleg jólalög með sinni undurblíðu Þrastarrödd, og hvað gat maður annað en tekið undir með þessum manni sem er greinilega margt til lista lagt nema kannski að vita ekki hvað klukkan er þegar hann er að hengja upp jólaskraut:klikk:

Kveðja Grandmaster J.B.


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 23:01:18 / arihj

blogg dagsins.

Another day goes by!!!

Jæja, ligg bara í sófanum og er að horfa á Herra Ísland 8| (Konan ræður sjónvarpsefninu í kvöld:$ Skemmtilegt að horfa á fullorðna menn spranga um sviðið í einhverri módel keppni(INN MEÐ LEÐJUGLÍMUNA), og hvar kaupir maður miða á svona vitleysu....... Svar: Ungfrú Ísland.is hahahahahaa. Mér finnst að á næsta ári ætti ég að senda hann Gunnar minn, því hann myndi rústa þessu:P svo væri gaman að senda Egil líka, þeir myndu taka sig vel út sitjandi saman með kórónu á höfði og sætt (spékoppa) bros á vör. Ingþór myndi sko aldeilis..... aldeilis....... vera öflugur í klappliðinu8).. (Þegar menn kommenta á blogginu mínu skrifa menn undir nafni. Og nú eru strákarnir að koma fram á boxer frá oriblu (Ungfrú Ísland)

Að lokum ætla ég að minna mömmu á að orðið geymt er skrifað með y

Kveðja Ari

 


» 3 hafa sagt sína skoðun